Websmith stjórnhluti - innskráning
Fossavatnsgangan 2010
Úrslit MS mótiđ í göngu 2010 Úrslit Í bikarmót SKI Ísafirđi 21.02.2010 tvíkeppni Úrslit bikarkeppni SKI 20 02 2010 frjáls ađferđ. Úrslit bikarkeppni SFI sprettganga 19.02.2010 Vestfjarđamót 2010 lengri vegal. Úrslit SFI mótsins í göngu
Ţjálfarar veturinn 2009 Lög Skíđafélags Ísfirđinga Saga skíđaiđkunar á Ísafirđi Stjórn og nefndir Greinar Handbók
Ćfingatafla 2010 alpagreinar Mótaskrá alpagreina 2010 Skráningarblađ og verđskrá Úrslit móta í alpagreinum 2009 Úrslit móta í göngu 2009 Mótaskrá SFÍ 2009 alpagreinar Ćfingatöflur
Myndasíđur Skíđasvćđi Skíđasambandiđ og ađildarfélög ţess




Upplýsingar um skíđasvćđin

Skiptimarkađur

Lifandi tímataka
dags. | 25-04-2010
Andrésar andar leikunum lokiđ

Ísfirðingar áttu 68 keppendur á 35. Andrésar andar leikunum sem fram fóru í Hlíðarfjalli dagana 21.-23. apríl. Keppnin fór fram í blíðskaparveðri og nægum snjó. Ísfirðingar stóðu sig með prýði, sérstaklega í skíðagöngu þar sem krakkarnir sópuðu að sér verðlaunum. Athyglisvert var líka að sjá hversu vel margir alpakrakkarnir stóðu sig þrátt fyrir að hafa sáralítið getað æft þennan veturinn. Þess má geta að sjónvarpsstöðin N4 tók viðtal við nokkra ísfirska keppendur og hefur það verið sýnt reglulega alla helgina. Ísfirðingurinn Arna Sigríður Albertsdóttir setti leikana á miðvikudagskvöld í troðfullri íþróttahöllinni á Akureyri. Það hefði mátt heyra saumnál detta, fólk andaði varla á meðan hún flutti ræðu sína. Þar sagði hún frá skíðaferli sínum og sviplegum endi hans. Hún gerði þetta stórkostlega vel og það sem meira var að hún náði til allra, barna jafnt sem fullorðinna, ekki síst þegar hún sagði að það væri ekkert aðalatriði að komast á verðlaunapall heldur bara að fá að upplifa stemmninguna á þessu einstæða móti. Ísfirðingarnir í salnum máttu vera stoltir af hetjunni sinni þetta kvöld og einnig þegar þeir sáu hana skíða á fullri ferð á einskíðinu sínu í brekkum Hlíðarfjalls dagana á eftir.