Æfingagjöldin
Margir hafa beðið óþreyjufullir eftir því að fá að greiða æfingagjöld vetrarins og nú er loksins komið að því. Þar sem ekki náðist að senda út greiðsluseðla vegna haustæfinga í nóvember verða greiðsluseðlar vegna æfingagjalda fyrir veturinn 2014-2015 sendir út í febrúar. Verð eru sem hér segir:
Haustæfingar: kr. 18.000,- fyrir 10-11 ára og 23.000,- fyrir 12 +
Voræfingar: kr. 33.000,- fyrir 10-11 ára og 43.000,- fyrir 12+
Systkinaafsláttur er 15% af æfingagjöldum yngra barns.
Hægt er að greiða inn á seðlana í heimabanka ef ekki hentar að greiða ekki alla upphæðina í einu.
ATH: Í upphaflegu útgáfunni af þessari tilkynningu var farið rangt með aldursflokkaskiptinguna og er beðist velvirðingar á því.