Keppni á Unglingameistaramóti Íslands lokið í dag.
Keppni á UMÍ í Dölunum tveimur á Ísafirði er lokið í dag. Aðstæður í dag hafa verið frábærar sólskin, logn og nokkura gráðu hiti og færið hélst gott í allan dag þrátt fyrir sól og hita. Keppendur sýndu skemmtileg tilþrif og héldu allir glaðir heim eftir skemmtilegan dag.
Úrslit mótsins má finna í dálknum hér til vinstri á síðunni. Gönguúrslitin eru hér og úrslit í alpagreinunum má finna hér.
Á morgun verður keppt í boðgöngu og samhliðasvigi. Boðgangan hefst kl. 11:00 og keppni í samhliðasvigi hefst kl. 10:00
Mótshaldarar þakka þjálfurum, keppendum og aðstandendum þeirra svo og starfsfólki, fyrir góðan dag.