Unglingalandsmótið hafið
Kl. 12:00 Loksins, loksins, lyftan er komin í lag. Keppni hefst kl. 12:45 í svigi stúlkna 13-14 ára og drengir 13-14 ára verða ræstir strax á eftir stúlkunum.
Keppni í stórsvigi stúlkna 15-16 ára hefst kl. 14:00 og piltar 15-16 ára verður startað strax á eftir stúlkunum.
kl. 11:00 Enn er seinkun og næstu fréttir kl. 11:30
Kl. 10:30 Enn situr allt við það sama og næstu frétta er að vænta kl. 11:00
Kl. 10:00 Lyfta er enn biluð og næstu fréttir koma eftir kl. 10:30
Unglingameistaramót Íslands (UMÍ) var sett í gærkvöldi í Ísafjarðarkirkju að viðstöddu fjölmenni.
Keppni átti að hefjast í morgun kl. 9:30 en vegna bilunar í lyftu hefur orðið að fresta starti. Nýrra frétta er að vænta kl. 10:00
Þegar mótið hefst verður byrjað á svigi stúlkna 13-14 ára og í kjölfar þeirra koma svig drengir 13-14 ára. Síðan verður stórsvig stúlkna 15-16 ára og síðan stórsvig dgregja 15-16 ára.
Eftir lok fyrri ferðar í hverjum flokki byrtist frétt með tímum keppenda. Í lok keppni verða úrslitin sett ínn á tengilinn UMÍ 2012, sem er hér til vinstri á síðunni.
Hægt er að fylgjast með lifandi tímatöku með því að smella á skeiðklukkuna neðst í hægra horninu.
Ráslistar: