Aðalfundur Skíðafélags Ísfirðinga 2024 verður haldinn þann 13.maí n.k. Fundurinn fer fram í Vallarhúsinu á Torfnesi og hefst klukkan 20:00.
Dagskráin er eftifarandi:
1. Skýrsla stjórnar
2. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
3. Umræður um skýrslu og reikninga.
4. Lagabreytingar
5. Kosning stjórnar fyrir næsta starfsár
6. Önnur mál
Félagsmenn og aðrir sem koma að starfi félagsins eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórn SFÍ leggur til lagabreytingar á lögum félagsins. Lagabreytingarnar má finna hér.
NánarVel heppnuð Skíðavika er nú að baki og stóð Skíðafélag Ísfirðinga fyrir fjölda viðburða. Fyrst ber að nefna setningu Skíðaviku en þar stendur SFÍ vaktina með sölu á heitu kakói og heimabökuðum pönnsum ásamt sölu á alls kyns bakkelsi til að gæða sér á yfir páska.
Á Skírdag var haldin Skíðaskotfimi á Seljalandsdal í samvinnu við Skotveiðifélag Ísafjarðar og í ár var einnig boðið upp á hópferð í fjallaskíðun þar sem skíðað var frá Tungudal og yfir í Botnsdal og var þátttaka í báðum viðburðum mjög góð.
Á föstudaginn langa var svo furðurfatadagurinn og karamelluregn á Tungudal þar sem foreldrar skíðabarna sáu um að grilla pylsur. Stemmningin á dalnum var mjög góð og minnti um margt á gamla tíma þar sem bílastæðaröðin náði upp að göngum, svo góð var mætingin. Forsetinn sjálfur mætti í Tungudal og fékk að upplífa aðeins stemmninguna sem fylgir Furðufatadeginum og gæddi sér á grillaðri pylsu.
Á laugardag var svo páskaeggjamót HG. Það eru æfingakrakkar okkar í eldri hópum sem sjá um að leggja ævintýra braut fyrir yngri krakka og sjá alfarið um að ræsa keppendur og taka á móti þeim í mark og gefa páskaegg að launum. Veðrið var aðeins að stríða okkur í ár en þrátt fyrir það var mjög góð þátttaka.
Vaninn er að hafa Furðufatadag og páskaeggjamót á Seljalandsdal en vegna veðurs í ár fluttum við Skíðagöngufurðufatadaginn niður í Tunguskóg þar sem æfingakrakkar lögðu þrautabraut, foreldrar æfinga krakka grilluðu pylsur og Ragnar Högni hjá Skíðasvæðinu græjaði karamelluregn. Þátttaka var góð og mikil ánægja með að hafa þennan viðburð í skóginu okkar þar sem alltaf er gott veður.
Við viljum þakka kærlega öllum þeim foreldrum og iðkendum sem hjálpuðu okkur að gera þessa viku svona skemmtilega. Síðan ber að þakka styrkaraðilum okkar HG sem gefa páskaeggin og Hótel Ísafirði sem gefa okkur pylsur og aðrar veitingar í fjáröflunarskyni. Síðast en ekki síst þökkum við snillingunum okkar hjá Skíðasvæði Ísafjarðar fyrir frábæra samvinnu. Við segjum eins og vinir okkar hjá Aldrei, maður gerir ekki rassgat einn!
NánarBikarmóti unglinga í alpagreinum sem haldið var í Tungudal lauk í dag þegar keppt var í stórsvigi. Aðstæður til keppni voru með besta móti, kalt og sólarglennur á harðpökkuðum snjó. Að keppni lokinni hjá hvorum flokki var verðlaunaafhending, helstu úrslit voru þessi:
12-13 drengir: Sigurvegari var Barri Björgvinsson Dalvík, í öðru sæti Daníel Ernir J. Gunnarsson KR og í þriðja sæti Friðrik Kjartan Sölvason SKA.
12-13 ára stúlkur: Sigurvegari var Silvía Mörk Kristinsdóttir SKA, í öðru sæti Mundína Ósk Þorgeirsdóttir SSS og í þriðja sæti Lára Elmarsdóttir Van Pelt Víkingi.
14-15 ára drengir: Sigurvegari var Alex Bjarki Þórisson Ármanni, í öðru sæti Arnór Alex Arnórsson KR og í þriðja sæti Gísli Guðmundsson Ármanni.
14-15 ára slúlkur: Sigruvegari var Sólveig Sigurjóna Hákonardóttir UÍA, í öðru sæti Hrefna Lára Zoëga UÍA og í þriðja sæti Linda Mjöll Guðmundsdóttir Ármanni.
Auk hefðbundinna gull, silfur og bronsverðlauna voru einnig veitt verðlaun fyrir besta millitíma og krýndur flatameistari afmælismóts SFÍ í hverjum keppnisflokki. Verðlaun flatameistaranna var Aldrei fór ég suður húfa.
Flatameistarar er: 12-13 ára drengir; Barri Björgvinsson Dalvík. 12-13 ára stúlkur; Eyrún Hekla Helgadóttir Dalvík. 14-15 ára drengir; Gísli Guðmundsson Ármanni. 14-15 ára stúlkur; Anna Soffía Óskarsdóttir Ármanni.
Skíðafélag Ísfirðinga þakkar keppendurm, þjálfurum, fararstjórum og öðrum gestum kærlega fyrir komuna á þetta Afmælismót SFÍ. Við hlökkum til að hitta sem flesta aftur á næsta ári á nýju móti.
NánarNú er öðrum keppnisdegi lokið hjá okkur á Skíðamóti Íslands.
Íslandsmeistarar í 15km göngu með frjálsri aðferð voru Dagur Benediktsson frá Skíðafélagi Ísfirðinga og Kristrún Guðnadóttir frá Ulli. Í öðru sæti i karlaflokki var Snorri Einarsson og Ævar Valbjörnsson í þriðja. Önnur kona í mark var Árný Helga Birkisdóttir og Birta María Vilhjálmsdóttir í þriðja.
Í Flokki 15-16 ára var Vala Kristín Georgsdóttir sigurstranglegust hjánstúlkunum, Svava Rós Kristófersdóttir var í öðru sæti og Dagný Emma Kristinsdóttir í því þriðja. Hjá drengjunum var Eyþór Freyr Árnason í fyrsta sæti, Elías Mar Friðriksson í öðru sæti og Stefán Þór Birkisson í þriðja.
Í flokki 13-14 ára stúlkna sigraði María Sif Hlynsdóttir, Birna Dröfn Vignisdóttir í öðru sæti og Karen Emelía Vestmann Káradóttir í því þriðja. Hjá drengjunum sigraði Jökull Ingimundur Hlynsson, Daði Pétur Wendel var í öðru og Heimir Logi Samúelsson í þriðja.
Öll úrslit má sjá hjá timataka.net
Takk fyrir daginn og sjáumst á morgun.
Nánar